|
|
|
|
| |
Heim : Fréttir : Fréttir frá Gæðastjórnun 2010 - ráðstefnan 11. mars 2010
Fréttir frá Gæðastjórnun 2010 - ráðstefnan 11. mars 2010
Ráðstefnan Gæðastjórnun 2010 - Nýjar reglur í samræmismati og eftirliti var vel sótt af áhugsömum þátttakendum úr öllum geirum atvinnulífsins enda gæðastjórnun lykill að velgengni allra fyrirtækja burtséð frá starfsemi.
Erindi fyrirlesara voru ólík en fjölluðu öll um gæðstjórnun, Guðmundur gæðastjóri Landsvirkjunar fjallaði um uppbyggingu gæðastjórnunar hjá Landsvirkjun og þróun í gæðastýringu almennt. Árni framkvæmdastjóri BSI á Íslandi fór yfir tölur um aukningu vottaðra fyrirtækja í heiminum en þau eru nú um ein milljón og hefur mesta aukningin verið í umhverfisstjórnunarstöðlum síðustu árin. Kristín gæðastjóri rannsóknarsviðs LSH lýsti svo vel hver væri ávinningurinn af gæðastjórnuninni og hvers vegna faggilding skipti máli og þá endaði hún erindi sitt með þessu orðum: "Gæðahandbókin er gullnáma!"
20100311 Þróun Gæðastjórnunar og áherslurnar í dag, Focal ráðstefna_ gsp Glærurnar hans Guðmundur S. Péturssonar, gæðastjóra Landsvirkjunar
Hvers vegna tókum við ákvörðun um að fara í faggildingu (ISO 15189) núna? Kristín Jónsdóttir, gæðastjóri Sýklafræðideildar Landspítala, háskólasjúkrahúss
Mikil aukning vottaðra fyrirtækja, hvers vegna? Árni Kristinsson, framkvæmdastjóri BSI á Íslandi
Eru íslensk fyrirtæki að brjóta lög? Nýjar reglur innan Evrópusambandsins hafa áhrif á alla vöruframleiðslu, dreifingu og sölu sagði Tryggvi Axelson, forstjóri Neytendastofu í fyrirlestri sínum. Þá kom fram í erindi Tryggva að fáir hérlendis gera sér grein fyrir að ef vörur eru ekki CE merktar í dag þá eru þær ólöglegar og geta dreifingar- og söluaðilar verið ábyrgir ef galli finnst í vöru. Þetta eru gríðarlega miklar breytingar sem kalla á ný vinnubrögð hjá framleiðendum, sölu- og dreifingaraðilum. Þessi nýju lög fjalla um vöru en Evrópusambandið er með reglur um þjónustu í smíðum sagði Tryggvi.
CEMerkingarNeytendastofa Glærurnar hansTryggva Axelssonar, forstjóra Neytendastofu
Mannlegir þátturinn aldrei ofmetinn Eyþór, vinnusálfræðingur og ráðgjafi hjá Þekkingarmiðlun hélt heldur betur erindi sem hristi upp í þátttakendum þegar hann fjallaði um mikilvægi mannlega þáttarins við innleiðingu á breytingum, en í erindinu tók hann meðal annars fyrir hvernig bregðast ætti við ef erfiðir einstaklingar tefðu fyrir breytingum. Svala Rún forstöðumaður ráðgjafar hjá FOCAL hélt erindi um fílakenninguna og hvernig borða ætti fílinn í 10 þrepum við innleiðingu breytinga eins og gæðstjórnun er, en þar er markaðsetning verkefnisins afar mikilvæg sagði Svala. Sagði hún frá nokkrum verkefnum sem höfðu tekið þekktar persónur í lið með sér til þess að ná til starfsmanna, eins og Superman, Einstein, Strumpana og fleiri. Eyþór og Svala vitnuðu bæði í rannsóknir sem sýna að allt að 70-80% af breytingarverkefnum eru háðar mannlega þættinum.
Hugbúnaður til daglegrar gæðastjórnunar Kristín markaðsstjóri FOCAL fór yfir hversu mikilvægt það er að hugbúnaður til gæðstjórnunar sé hluti daglegra starfa en ekki aukavinna. Nauðsynlegt er að þekkja kröfurnar, kortleggja ferlana, lýsa verklagi í gæðahandbók, hafa kerfi til að framkvæma vinnuna og vakta og mæla árangurinn sagði Kristín í erindi sínu.
Hugbúnaður til að auðvelda daglega gæðastjórnun. Glærunar hennar Kristín Björnsdóttir, markaðsstjóri FOCAL
Myndir frá Ráðstefnunni
(skráð 16. mar. 2010)
Til baka
Prentvæn útgáfa |
 Senda í tölvupósti |
 Senda á Facebook |
|
|