|
|
|
|
| |
Heim : Fréttir : Autonomy sérfræðingar í skjalastjórnun
Autonomy sérfræðingar í skjalastjórnun
Hugbúnaðarfyrirtækið Autonomy er stærsta hugbúnaðarfyrirtæki Evrópu í dag og vex hratt í kreppunni, en eweek.com fjallaði nýverið um vaxtamöguleika Autonomy og skýrir út hvers vegna. Öll fréttin
Autonomy fyrirtækið er einstakt enda sópar það að sér verðlaunum og jákvæðri umfjöllun um allan heim. Hugbúnaður fyrirtækisins uppfyllir ávallt ítrustu kröfur og er oftar en ekki fremstur í sínum flokki á heimsvísu enda sýnir viðskiptavinalistinn og "case studies" að viðskiptavinir Autonomy hafa náð miklum árangri og arðsemi af innleiðingu hugbúnaðar frá þeim.
En hvað gerir Autonomy svo sérstakt ?
IDOL: Leit í öllum gögnum fyrirtækisins ( Pan-enterprise search) IDOL leitarvélina frá Autonomy er hægt að fá til að leita í öllum gögnum eins fyrirtækis, burtséð frá gagnagrunni, tegund skjals, tungumáli eða geymslustað. IDOL leitin byggir á mjög flókinni stærðfræði og kallast leit af þessum toga greindarleit. IDOL leitarvélin er notuð í flestum vörum Autonomy með einum eða öðrum hætti. Sjá frekari upplýsingar
e-talk : Samskiptamiðstöð og hljóð skjalastjórnun (Contact Center and Audio Archiving) Mörg fyrirtæki verða að taka upp samskipti við viðskiptavini í gegnum síma vegna reglugerða eða gæðakrafna. Þessar upplýsingar er hægt að breyta yfir í leitarhæfan texta með e-talk hugbúnaðinum frá Autonomy. Þá er hægt t.d. að láta hugbúnaðinn stoppa upptöku sjálfvirkt, ef viðskiptavinur þarf t.d. að gefa upp kreditkortanúmer eða aðrar viðkvæmar upplýsingar sem ekki má geyma. Sjá frekari upplýsingar
eDiscovery (ZANTAZ) : Að finna mikilvæg gögn og samhengi þeirra Gríðarlegar breytingar eru að verða á kröfum um endurheimt rafrænna gagna vegna rannsókna opinberra eftirlitsaðila og lögsókna. Lögum og reglugerðum fjölgar mikið um allan heim og mun gera á næstu árum og því ógerlegt að framfylgja þeim nema tiltækur hugbúnaður til slíkra rannsókna sé til staðar. Autonomy hugbúnaðurinn er t.d. notaður með eftirfarandi hætti: Afrit tekin af öllum rafrænum gögnum í öllum gagnagrunnum og tölvum og drifum. Gögnin flokkuð og greind eftir markmiðum rannsóknarinnar, samskiptamunstur og samhengi á milli skjala fundið með greindarleit. Tölfræðirit sýna t.d. samskipti á milli aðila, netföng er tengjast, skjöl sem tengjast svo dæmi séu nefnd. Þannig er gengið frá gögnunum að þau eru að fullu dómtæk. Sjá frekari upplýsingar
Cardiff: Vinnuferlastjórnun með "greindum" skjölum Vinnuferlakerfið getur gert flóknustu ferla sjálfvirka, þar sem eru mörg þrep, margir samþykkjendur, þrep sem fara fram og til baka og þar sem margvísleg skjöl safnast á ferlinn. Hægt er að láta feril líkja eftir aðstæðum til að sjá líklega niðurstöðu (simulation). Kerfið er hægt að tengja öðrum lausnum sem í notkun eru. Sjá frekari upplýsingar
VIRAGE: Greining á efni í sjónvarpi, á Internetinu, hljóði, mynd Autonomy fyrirtækið er lang fremst í þessari tegund hugbúnaðar sem er t.d. notaður til að vakta upplýsingar á Internetinu. Gott dæmi væri ef íslensk stjórnvöld hefðu ákveðið að vakta alla umfjöllun um Ísland er tengdust falli bankanna. Slík upplýsingavakt er á rauntíma. Fréttamiðlar um víða veröld nýta sér þennan hugbúnað til að fylgjast með öðrum fréttamiðlum hvort sem um útvarp, sjónvarp eða netmiðil er að ræða. Þá er hann notaður í margvíslegum eftirlits- og rannsóknarstörfum t.d. hjá lögreglu. Sjá frekari upplýsingar Sjáðu sjálfur hvernig hægt er að leita í myndskeiðum Smelltu hér
Meridio: Heildræn skjalastjórnun, algjörlega Microsoft samhæfð Merido skjalakerfið uppfyllir ítrustu kröfur alþjóðlegra staðla um skjalastjórn en er samt svo einfalt í notkun. Kerfið er algjörlega Microsoft samhæft og vinnur notandinn í kerfinu í gegnum Outlook, SharePoint, Office eða vefviðmót. Meridio sér um lífshlaup skjals í gegnum skjalaflokka og geymsluáætlanir, sér um aðgangsstýringar, útgáfustýrir skjölum, breytir skjölum í fullbúin óbreytanleg skjöl samkvæmt stöðlum, leyfir dulkóðun og að sett sé "legal hold" á skjöl. IDOL er leitarvélin í kerfinu en hún leitar í 250 skjalategundum og yfir 100 tungumálum.
Í kerfinu er yfirgripsmikil skráning og þjónusta við órafræn skjöl s.s. pappírsskjöl, stafrænar myndir og myndskeið og hægt er með IDOL heildarleit að tengja skjöl úr öðrum gagnagrunnum og stýra þeim eins og um Meridio skjöl sé að ræða. Þá eru til staðlaðar tengingar við margvíslegan hugbúnað eins og t.d. SAP. Sjá frekari umfjöllun
Upplýsingar á heimsíðu FOCAL: Meridio Skjalakerfi
FOCAL er umboðsaðli Autonomy á Íslandi, svo ef þú vilt vita meira um ofannefndan hugbúnað hafðu þá samband í 5400 900 eða sendu okkur fyrirspurn: Senda fyrirspurn
(skráð 14. jan. 2009)
Til baka
Prentvæn útgáfa |
 Senda í tölvupósti |
 Senda á Facebook |
|
|