Heim Fréttir Starfsumsókn Fyrirspurnir Ábendingar Verkbeiðnir Styrkbeiðnir English


Leita á vef
Ítarleg leit

Nýjustu fréttir
 
Heim : Fréttir : Rafræn Siglingastofnunm með FOCALForms.net
Rafræn Siglingastofnunm með FOCALForms.net
Siglingastofnun hefur gert 30 eyðublöð rafræn og gagnvirk í FOCALForms.net og flæða útfyllt eyðublöð síðan inn í sjálfvirka vinnuferla í FOCAL Skjalakerfinu, sagði Guðmundur Guðmundsson gæðastjóri Siglingastofnunar, meðal annars í erindi sínu um Rafræna Siglingastofnun á hádegisfundi FOCAL um eyðublaðasmiðinn FOCALForms.net.

Hörður Olavson framkvæmdastjóri FOCAL, kynnti FOCALForms.net. Í erindi hans kom fram hvernig venjulegir notendur geta útbúið gagnvirk eyðublöð frá grunni án þess að forritari komi að sem og breytt pdf eyðublöðum með einni aðgerð yfir í Forms eyðublað. Þá er hægt að breyta þeim, útgáfustýra og gefa út á heimasíðu eða innri vef. Þegar útfyllt eyðublöð byrja að streyma inn er hægt að fylgjast með þeim í umsóknarhluta kerfisins, en jafnframt er hægt að skoða þau sem pdf myndir af umsókninni. Auðvelt er síðan að senda upplýsingar úr eyðublöðunum yfir í önnur kerfi þar sem um er að ræða gagnvirk eyðublöð sem XML stendur á bakvið. Hér má sjá myndskeið og upplýsingar um kerfið. Myndskeið

Kynningin var afar vel sótt og áhugi þátttakanda mikill. Hér má sjá myndir frá kynningunni. Myndir

Tilboð til þeirra sem skráðu sig á kynninguna:
Við bjóðum öllum þeim fyrirtækjum sem komu skráðu sig á kynninguna að senda einn eða fleiri á námskeið í gerð eyðublaða í FOCALForms.net og fá í kjölfarið tveggja vikna ókeypis aðgang í kerfið. Komdu á námskeið, útbúðu eyðublað fyrir þitt fyrirtæki eða breyttu PDF eyðublaði í Forms eyðublað og notaðu svo eyðublaðið gagnvirt í tvær vikur án endurgjalds. Sjá næsta námskeið: Skráning

Þeir sem sáu sér ekki fært að koma á kynninguna en hafa áhuga á að kynna sér kerfið frekar hvetjum við til þess að hafa samband við okkur á focal@focal.is

(skráð 7. nóv. 2011)

Til baka



Prentvæn útgáfa

Senda í tölvupósti

Senda á Facebook