Heim Fréttir Starfsumsókn Fyrirspurnir Ábendingar Verkbeiðnir Styrkbeiðnir English


Leita á vef
Ítarleg leit

Nýjustu fréttir
 
Heim : Fréttir : Grunnþekking á hraða sem hentar.
Grunnþekking á hraða sem hentar.

Námskeið Gæðastjórnunarskóla FOCAL eru hugsuð á þann hátt að þátttakendur, hver á sínum hraða, geti byggt upp grunnþekkingu á þeim þáttum sem nauðsynlegt er að hafa til að innleiða aukið gagnsæi með gæða- og skjalastjórnun eða aukið færni sína á einhverju einu sviði, s.s. verkefnastjórnun eða mannauðsstjórnun.
Fyrir hverja eru námskeiðin? Námskeiðin henta öllum þeim sem þurfa að auka færni sína í verkefna-, skjala-, gæða- eða mannauðsstjórnun.
Við viljum taka fram að alls ekki er nauðsynlegt að vera starfandi hjá einhverju fyrirtæki eða stofnun til þess að sækja námskeið hjá skólanum og eru nemendur, atvinnulausir og heimavinnandi alveg sérstaklega velkomnir og fá þeir 50% afslátt af öllum námskeiðum skólans.

Hvað kosta námskeiðin og hvenær eru þau haldin?
Námskeiðin eru flest 4 klst. og kosta kr. 19.800, en 3ja klst. námskeiðin kr. 15.800 til 16.800. Námskeiðin eru öll haldin eftir hádegi, þ.e. frá kl. 13.00 til 16.00 eða 13.00 til 17.00 og er það gert til að koma til móts við þá þátttakendur sem búa út á landi, þannig að þeir þurfi ekki að gista í höfuðborginni til að geta sótt námskeiðin.
Skráning á focal.is/skraning

Gerð Verklagsreglna I
Kennd er ritun verklagsreglna og vinnulýsinga með notkun flæðirita samkvæmt viðurkenndri aðferðafræði gæðastjórnunar.  Hópverkefni.



Gerð Verklagsreglna II
Framhald af Gerð verklagsreglna I, en kennt er hvernig best er að innleiða verklagsreglur og viðhalda og stýra ferlum til að tryggja að unnið sé skv. verklagi.  Hópverkefni.



Gerð– og skipulag handbóka
Kennt er hvernig best er að raða upp verklagsreglum, vinnulýsingum og öðrum gögnum inn í handbækur þannig að notendur geti auðveldlega fundið sín skjöl og viðhald og rekstur handbókanna sé einfalt.  Hópverkefni.



Framkvæmd innri úttekta
Framkvæmd og skipulag innri/ytri úttekta og eftirlits kennd, skýrt frá kröfum staðla um úttektir, farið yfir verklagsreglu um úttektir og hlutverk úttektaraðila. Hópverkefni.



Skjalastjórnun skv. alþjóðlegum skjalastjórnunarstaðli
Innleiðing skjalastjórnunar samkvæmt skjalastjórnunarstaðlinum ISO 15489, farið í meðhöndlun rafrænna- og pappírsskjala frá myndun til loka líftíma þeirra.



Verkefnastjórnun skv. ISO 9001 og PRINCE2
Byggt er á kröfum PRINCE2 og ISO 9001 við verkefnastjórnun og farið kerfisbundið í gegnum helstu þrep verkefnastjórnunar og skjalsnið er styðja við hlutverk þrepanna.



Starfsþróunarsamtöl
Farið í heildarferli starfsþróunarsamtala (starfsmannasamtala), undirbúning, innleiðingu og eftirfylgni. Kynntar verklagsreglur fyrir samtöl og rædd helstu mistök. Verkleg æfing.



Önnur námskeið
Visio - Myndræn framsetning gæðaskjala, FOCAL Gæðahandbókarnámskeið, Office 2007 nýjungar. Hægt er að sérpanta námskeið í FOCAL kerfunum og Meridio skjalakerfinu fyrir Microsoft.

(skráð 19. jan. 2010)

Til baka



Prentvæn útgáfa

Senda í tölvupósti

Senda á Facebook