Heim Fréttir Starfsumsókn Fyrirspurnir Ábendingar Verkbeiðnir Styrkbeiðnir English


Leita á vef
Ítarleg leit

Nýjustu fréttir
 
Heim : Fréttir : "Ég er viss um að það var hér allt í gær?" Ráðstefna um skjalastjórnun með gæðastjórnun - gagnsæi og rekjanleiki.
"Ég er viss um að það var hér allt í gær?" Ráðstefna um skjalastjórnun með gæðastjórnun - gagnsæi og rekjanleiki.
Ráðstefnan verður haldin 24. mars frá kl. 09:00-12:00 á Grand Hótel Reykjavík.
Ráðstefnunni er skipt í tvo hluta og fjallar sá fyrri um skjalastjórnun með gæðastjórnun, en seinni hlutinn er hefst kl. 11:00 um hugbúnað til skjala- og ferlastjórnunar og geta þátttakendur setið annan eða báða hluta ráðstefnunnar.

Ráðstefnan er í boði FOCAL og er þátttakendum að kostnaðarlausu.

Skráning hér

Dagskráin verður sem hér segir:


Fundarstjóri: Svanfríður Franklínsdóttir, Deildarstjóri Listasafn Íslands

Setning: Dr. Jóhanna Gunnlaugsdóttir, Prófessor í upplýsinga- og skjalastjórn, Háskóli Íslands

9:10 Skjalastjórnun á erfiðum tímum
Ólafur Sigurðsson, framkvæmdastjóri hjá Stöfum Lífeyrissjóði

9:25Týndi hlekkurinn
Jón B. Stefánsson, skólameistari, Tækniskólinn

9:45 Markmið og mælingar í skjalastjórnun: Hvað má betur fara?
Óskar Þráinsson ráðgjafi hjá FOCAL

10:00 Kaffihlé

10:10 Aðferðafræði innleiðingar skjalastjórnunar með gæðastjórnun
Erla Konný Óskarsdóttir, ráðgjafi hjá FOCAL

10:30 "Innleiðing skjalastjórnunar - reynslusaga."
Þór Ásgeirsson, forstöðumaður Sjávarútvegsháskóla Sameinuðu Þjóðanna

10:50 Fyrri hluti ráðstefnu slitið. - Annar hluti ráðstefnu hefst kl. 11.00

Seinni hlutinn er opinn bæði þeim sem sækja fyrri hlutann sem og þeim sem vilja einvörðungu sækja seinni hlutann. Dagskráin verður sem hér segir:

1. Kynning á hugbúnaði til Ferlastjórnunar fyrir Microsoft og SharePoint
2. Kynning á Meridio Skjalakerfinu fyrir Microsoft og SharePoint
-- Alþjóðlegir staðlar og viðmið (DOD; ISO; Moreq2...)
-- Hvernig vinnur Meridio með Outlook og SharePoint
3. Kynning á FOCAL Málakerfi með Meridio

Kynninguna halda Hörður Olavson framkvæmdastjóri FOCAL og Kristín Björnsdóttir, markaðsstjóri.

(skráð 17. mar. 2009)

Til baka



Prentvæn útgáfa

Senda í tölvupósti

Senda á Facebook