|
|
|
|
| |
Heim : Hugbúnaður : Gæðastjórnun : FOCAL Gæðahandbók
FOCAL Gæðahandbók
Sjá demo af útgefinni handbók í vefrápara Demo

FOCAL Gæðahandbók hefur verið á markaðnum frá 1994 og er notuð hjá fjölda fyrirtækja í öllum atvinnugreinum. Kerfið er ætlað til að halda utan um stefnuskjöl, verklagsreglur, vinnulýsingar, uppskriftir, leiðbeiningar, eyðublöð svo dæmi séu nefnd. Hægt er að nota teikniforrit eins og Visio fyrir flæðiritsreikningar og Word eða eigin ritvinnslu kerfisins fyrir texta.
Hentar fyrir rafrænar handbækur
Oft er verið að búa til rafrænar bækur sem bera heiti eins og rekstrarhandbók, skipulagshandbók, gæðahandbók, starfsmannahandbók eða tekur heiti eftir deildum eða sviðum. FOCAL Gæðahandbók er til fyrir Lotus Notes, SharePoint frá Microsoft og fyrir vefrápara FOCAL VefHandbók
Uppfyllir kröfur gæðastaðla
FOCAL Gæðahandbók uppfyllir kröfur allra helstu gæðastaðla en þær kröfur birtast meðal annars í því að haldið er utan um samþykktarferli, útgáfustýringu og breytingarsögu innan kerfisins.
Þarftu aðstoð við að byggja upp handbækur ?
Flestir notendur FOCAL Gæðahandbókarkerfisins nýta sér flæðirit fyrir verklagsreglur og vinnulýsingar. FOCAL Gæðastjórnunarskólinn býður upp á fjölda námskeiða til að hjálpa notendum að byggja upp skilvirkt og aðgengilegt skipulag á þeim skjölum og handbókum sem starfsmenn eiga að hafa aðgang að. Ráðgjafar FOCAL aðstoða fyrirtæki við að kortleggja ferla, byggja upp gæðakerfi og gera stöðumat á skjala-, öryggis- og gæðamálum.
Gæðahandbókina er hægt að skoða út frá ýmsum sjónarhornum t.d. kaflaskipt, eftir verkefnum, deildum, eftir kröfum í stöðlum eða eftir mismunandi notendahandbókum. Haldið er utan um endurskoðun skjala innan kerfisins og umsjónarmönnum skjalanna send tilkynning þegar komið er að endurskoðun þeirra ásamt því að stöðu þeirra er breytt. Gæðahandbókarkerfið er tímasparandi verkfæri. Hægt er að ákveða hvaða skjöl eiga að birtast til að mynda á Innra neti eða heimasíðu viðkomandi aðila ef það á við.
Helstu eiginleikar FOCAL Gæðahandbókar:
- Minnir á þegar endurskoða þarf gæðaskjöl
- Innbyggt ritstjórnarferli - stjórnað hverjir mega lesa, skrifa og breyta skjölum
- Innbyggt samþykktarferli - samþykkt höfunda, samþykkjenda og ábyrgðarmanns
- Útgáfuferill - útgáfa í Lotus Notes, intraneti, Interneti eða pappír
- Skjalasnið (template) fyrir stöðluð skjöl
- Sjálfvirk eða handvirk númerun gæðaskjala
- Sjálfvirkt efnisyfirlit
- Sjálfvirkt viðhald útgáfunúmera
- Geymir eldri útgáfur gæðaskjala
- Heldur vinnuskjölum og útgefnum skjölum aðskildum
- Gerir kleift að útbúa eins margar notendahandbækur og hentar
- Tilvísanir í staðla, lög og reglugerðir
- Sýnir verkefnalista skjala í vinnslu
- Sýnir stöðu skjala í kerfinu, hvaða starfsmaður hefur skjalið á hverjum tíma
Hvers vegna FOCAL Gæðahandbók?
Gæðahandbókin hentar öllum fyrirtækjum og stofnunum er þurfa að halda utan um leiðbeiningar, vinnulýsingar eða verklagsreglur.
Hugbúnaður:
Hægt er að kaupa Gæðahandbókina, leigja hana eða leigja og hýsa hjá FOCAL. FOCAL sér um að setja upp viðeigandi hugbúnað fyrir keyrslu á kerfinu. Internet Explorer 6.0 eða hærri.
Fyrir frekari upplýsingar sendið fyrirspurn til:
| 
|
FOCAL Software & Consulting - Hlíðasmára 14 - 201 Kópavogur - Iceland - Tel: +354 5 400 900 focal@focal.is
Prentvæn útgáfa |
 Senda í tölvupósti |
|
|
|