Heim Fréttir Starfsumsókn Fyrirspurnir Ábendingar Verkbeiðnir Styrkbeiðnir English


Leita á vef
Ítarleg leit

Nýjustu fréttir
 
Heim : Hugbúnaður : Gæðastjórnun : FOCAL Úttektir

FOCAL Úttektir

Er sértækt kerfi til að halda utan um innri og ytri úttektir og uppfyllir ýtrustu kröfur um framkvæmd úttekta. Gerð er úttektaráætlun, úttektarskýrsla sett upp, frávik skráð og sett í úrbótaferil og frávikum og skýrslunni lokað með rafrænum undirskriftum. Kerfið er fjöltyngt, vefhæft, gefur greinargóða yfirsýn og tryggir skilvirkan frágang úttekta og frávika.

Helstu eiginleikar FOCAL Úttekta:

  • Frávikaskýrslur verða aðgengilegar fyrir þær deildir sem þeim við koma
  • Afgreiðsla frávika verður skilvirkari
  • Með nákvæmri skráningu og afgreiðslu frávika minnka líkur á því að þau endurtaki sig
  • Virkni gæðakerfisins verður meiri
  • Hægt að skipuleggja úrbætur
  • Hægt að skrá ábyrgðarmann sem sér afgreiðslu frávika


Hvers vegna FOCAL Úttektir?
Flest fyrirtæki þekkja það að úttekta- og frávikaskýrslur eru í lokaðri möppu upp í hillu þar sem starfsfólk hefur ekki greiðan aðgang að þeim og því eiga frávik það til að endurtaka sig. Með því að geyma allar skár í tölvutæku formi þar sem allir geta gengið að þeim vísum aukast líkurnar á því að úttektirnar skili þeim árangri sem til er ætlast.


Hugbúnaður:
Notandi þarf að vera með Windows 95/98/NT/2000/XP eða Macintosh og útgáfu 5.0 af Lotus Notes eða nýrri. Netþjónn þarf að vera með Lotus Domino server útgáfu 5.0 eða nýrri.

MEÐAL NOTENDA
FOCAL ÚTTEKTAKERFIS

Alcan, Blóðbankinn, Flugfélag Íslands, Icelandic Ground Services, Matvælastofnun, Míla, Neytendastofa , Reykjavíkurborg Menntasvið, Siglingastofnun, Umhverfisráðuneytið, Verkfræðistofan Efla, Verkfræðistofan Mannvit



Fyrir frekari upplýsingar sendið fyrirspurn til: focal@focal.is




Prentvæn útgáfa

Senda í tölvupósti