K2 Vinnuferlakerfið og Þjónustubeiðnakerfi Orkuveitu ReykjavíkurK2.net hentar fyrir allar tegundir vinnuferla
K2.net nýtir sér flæðirit m.a. með Visio teikningum til að virkja vinnuferla. Notendur K2.net eru í öllum geirum og nýta sér kerfið til að virkja ferla á ólíkum sviðum, en má þar nefna fyrir þjónustuferla, ábendinga- og kvartnaferla, umsóknarferla, gæðaferla, mannauðsferla, framleiðsluferla, innkaupaferla, tilboðs- og útboðsferla, fjármálaferla, vöruþróunarferla, styrkbeiðnaferla svo dæmi séu nefnd.
K2.net vinnuferlakerfið tryggir rétt flæði upplýsinga
Sé vinnuferill ræstur fer af stað sjálfvirkni sem flytur skjöl á milli aðila, krefst mismunandi skráninga frá hverjum og einum, minnir á ef skráningum er ekki lokið á tilsettum tíma og færir skjöl yfir í önnur kerfi eða út til birgja allt eftir því hvernig ferillinn hefur verið skilgreindur og tengingar upp settar. Ávallt er hægt að smella á flæðiritið fyrir einstakt tilvik til að sjá hvar viðkomandi skjal er statt í ferlinu og rekja feril þess.
K2.net hefur margskonar notendaviðmót
Notendaviðmótið getur verið K2.net umhverfið, Sharepoint, Infopath eða Internet Explorer. Undirliggjandi gagnagrunnur er SQL og eru það einu kröfurnar til að keyra K2.net.
Þjónustubeiðnakerfi OR byggt í K2.net er nú hægt að kaupa
Við getum stolt sagt frá því að Þjónustubeiðnakerfi OR er nú til sölu í gegnum FOCAL. Kerfið tekur á nær öllum beiðna- og tilkynningaferlum sem hægt er að hugsa sér hjá OR, ábendingum, slysatilkynningum, úrbótum, styrkbeiðnum og beiðnum um þjónustu eða breytingu á þeim frá viðskiptavinum í gegnum vefform.
heimasíðu K2.net