Heim Fréttir Starfsumsókn Fyrirspurnir Ábendingar Verkbeiðnir Styrkbeiðnir English


Leita á vef
Ítarleg leit

Nýjustu fréttir
 
Heim : Fréttir : Tækniskólinn semur um skjalaráðgjöf og Meridio skjalakerfið
Tækniskólinn semur um skjalaráðgjöf og Meridio skjalakerfið
Tækniskólinn skrifaði undir samning við FOCAL í morgun um vinnu við skjalaráðgjöf og innleiðingu á Meridio Skjalakerfinu fyrir Microsoft og SharePoint. Tækniskólinn - Skóli Atvinnulífsins samanstendur af 13 skólum og þar af tveimur sem eru vottaðir samkvæmt gæðakerfi IS0 9000:2001.

Það er FOCAL mikil ánægja að bjóða Tækniskólann velkominn í hóp okkar kröftugu og faglegu viðskiptavina.

Úttekt samkvæmt ISO 15489
Skjalaráðgjöf FOCAL samanstendur af 5 þrepum, en eitt þeirra er úttekt samkvæmt ISO 15489 skjalastjórnunarstaðlinum. Slík formleg úttekt gerir viðkomandi rekstrareiningu mögulegt að setja sér markmið á sviði skjalastjórnunar út frá núverandi stöðu og fylgjast síðan með framgangi með reglulegu millibili.

Meridio Skjalakerfið fyrir Microsoft
Meridio skjalakerfið hefur unnið til fjölda viðurkenninga og var m.a. valið það besta af 17 skjalastjórnunarkerfum í árlegri könnun SOCITM. Kerfið hefur vakið gríðarlega eftirtekt um hinn vestræna heim og er t.d. í notkun hjá Statoil í Noregi, írska fjármálafyrirtækinu First Active, APA einum stærsta lífeyrissjóði Canada, skosku Orkuveitunni, breska Utanríkisráðuneytinu og TNT svo nokkur dæmi séu nefnd.

Meridio er Microsoft samhæft skjalakerfi og býður það m.a. upp á vinnu í gegnum Outlook, SharePoint og Microsoft Explorer. Kerfið er auðvelt og öruggt í notkun og uppfyllir allar þær kröfur sem gerðar eru til skjalakerfa samkvæmt ISO 15489, DOD 5015.2 og uppfyllir þær ströngu kröfur sem Sarbanes-Oxley, Basel II og MoReq gera.

Myndskeið er sýna virkni Meridio Meridio Myndskeið

(skráð 15. des. 2008)

Til baka



Prentvæn útgáfa

Senda í tölvupósti

Senda á Facebook