Heim
Fréttir
Starfsumsókn
Fyrirspurnir
Ábendingar
Verkbeiðnir
Styrkbeiðnir
Leita á vef
Ítarleg leit
RSS
Nýjustu fréttir
Skoða eldri fréttir...
Heim
:
Fréttir
: Garðabær innleiðir PhotoServer fyrir stafrænar myndir
Garðabær innleiðir PhotoServer fyrir stafrænar myndir
Garðabær eins og margar aðrar stofnanir og fyrirtæki eiga fjölda stafrænna mynda sem hafa ekki verið vistaðar í einu miðlægu skjalakerfi fyrir stafrænar myndir. Nú hefur Garðabær gert samning við FOCAL um innleiðingu á FOCAL PhotoServer til þess að endurskipuleggja skjalastjórnun mynda í eigu sveitafélagsins.
Um FOCAL PhotoServer
Með FOCAL PhotoServer er auðvelt að setja inn myndir þar sem kerfið er vefhæft og eru því allar myndir og myndaraðir settar inn í gegnum Internet Explorer. Kerfið les upplýsingar úr myndavélinni og leyfir síðan innskráningu á lýsigögnum eins og hverjum og einum hentar. Hægt er að setja myndir inn á nánast hvaða formati sem er og taka myndirnar út á því formati sem hentar. Kerfið er mjög notendavænt og sveigjanlegt og gerir skjalastýringu myndefnis mögulega. Hægt er að setja margar myndir inn í einu. Tengingarmöguleikar: Inn á heimasíður, við verkefnakerfi, við GPS hnit á loftmyndum ofl, ofl.
FOCAL PhotoServer hentar öllum fyrirtækjum og stofnunum sem þurfa að varðveita myndefni og hafa gott aðgengi og skipulag á sínu myndefni, en meðal notenda eru Landsvirkjun, Siglingastofnun, Skipulagsstofnun, Vegagerðin, VERKÍS og Faxaflóahafnir.
Prófaðu sjálfur að setja inn myndir í FOCAL PhotoServer
PhotoServer
Sérstakt tilboð býðst nú á PhotoServer: 145.000 kr. fyrir allt að 50.000 myndir. (án VSK)
Ef þú vilt fá kynningu eða frekari upplýsingar hafðu samband við okkur á focal@focal.is eða í síma 5400 900.
(skráð 3. mar. 2010)
Til baka
Prentvæn útgáfa
Senda í tölvupósti
Senda á Facebook