Meridio skjalastjórnunarkerfið frá Autonomy byggir á eiginleikum Microsoft. Meridio hentar sérlega vel fyrirtækjum sem vilja halda sig við Microsoft umhverfið og býður m.a. upp á vinnu í gegnum Outlook, SharePoint og Microsoft Explorer. Kerfið er auðvelt og öruggt í notkun og uppfyllir allar þær kröfur sem gerðar eru til skjalastjórnunarkerfa samkvæmt ISO 15489, DoD 5015.2, Sarbanes-Oxley, Moreq og fjölda annarra staðla.
Meridio hefur verið á markaðinum frá 1999 og hefur unnið til fjölda verðlauna auk viðurkenningar frá Microsoft. Sjá meðal annars Meridio vinnur RECORDS MANAGEMENT PRODUCT OF THE YEAR AWARD
Merido skjalakerfið er með öfluga aðgangstýringu sem tryggir að eingöngu þeir sem hafa leyfi geta unnið með tiltekin skjöl. Einnig er hægt að dulkóða skjöl til enn frekara öryggis. Kerfið varðveitir skjölin allt lífshlaup þess og gerir ekki greinarmun á mismunandi formati / tegundum. Í kerfinu er einnig yfirgripsmikil skráning og þjónusta við órafræn skjöl s.s. pappírsskjöl, stafrænar myndir og myndskeið.
HELSTU KOSTIR
#Algjörlega Microsoft samhæft
#Notendur þurfa ekki að læra á nýtt viðmót þar sem núverandi viðmót er notað
#Uppfyllir allar kröfur alþjóðlegra staðla og reglugerða stærri landa um skjalastjórn
#Gríðarlega öflug leit : Leitar í 250 skjalategundum og yfir 100 tungumálum
#Afar öflug aðgangsstýring að skjölum
#Hægt að setja "Legal Hold" á skjöl
#Notendaviðmót í gegnum Outlook, SharePoint eða vefclient. Sjá myndskeið: Meridio Myndskeið