Heim Fréttir Starfsumsókn Fyrirspurnir Ábendingar Verkbeiðnir Styrkbeiðnir English


Leita á vef
Ítarleg leit

Nýjustu fréttir
 
Heim : Fréttir : Komdu í kaffi til okkar: Kynning og tilboð til notenda FOCAL Gæðahandbókar
Komdu í kaffi til okkar: Kynning og tilboð til notenda FOCAL Gæðahandbókar
Fimmtudaginn 10. mars frá kl. 11:45-12:45 kynnum við nýjungar í FOCAL Gæðahandbók og hvernig Gæðahandbók, Úttektarkerfið og Action Items vinna saman til að auka virkni gæðakerfisins.

Í mars bjóðum við 50% afslátt af FOCAL Action og 25% af Úttektarkerfinu til þeirra sem eru með viðhaldssamning á FOCAL Gæðahandbók. Léttar veitingar eru í boði og þátttaka er ókeypis.

Kynntu þér helstu nýjungar hér að neðan og skráðu þig hér á kynninguna.





FOCAL Gæðahandbók 6.4
Við höfum lagt mikla vinnu í framþróun FOCAL gæðakerfanna á síðustu misserum og teljum að þær breytingar og tengingar sem við höfum gert auðveldi umsjón og innleiðingu þeirra gæðaskjala sem viðskiptavinir okkar halda utan um í gæðahandbókinni.

Á síðasta ári höfum við bætt og breytt yfir 100 atriðum í FOCAL Gæðahandbókinni og viljum við þakka þeim fjölmörgu notendum sem hafa sent okkur ábendingar fyrir þátttökuna í þróun Gæðhandbókarinnar.

Helstu breytingar
1. Í FOCAL Gæðahandbókinni er nú innbyggðir stigskiptir listar fyrir lög, reglugerðir og staðla með t.d. kaflaheitum alþjóðlegra staðla eins og ISO 9001 um gæðastjórnun, ISO 27001 um upplýsinga- og öryggisstjórnun og ISO 14001 um umhverfisstjórnun

2. Nýtt sjónarhorn sýnir endurskoðun skjala

3. Nýtt sjónarhorn fyrir verkefnalista

4. Hægt að gefa út óbreytt gæðaskjal með nýju útgáfunúmeri án þess að skjalið farið í samþykktarferil

5. Miklar endurbætur á framsetningu gæðaskjala á vef

6. Hægt að velja hvaða sjónarhorn kemur fyrst upp á vef

7. Teljari á hversu oft gæðaskjöl á vef hafa verið opnuð

8. Hægt að skrá breytingarbeiðni beint af vef

9. Tengingar við FOCAL Úttektir og Action

(skráð 7. mar. 2011)

Til baka



Prentvæn útgáfa

Senda í tölvupósti

Senda á Facebook