Heim Fréttir Starfsumsókn Fyrirspurnir Ábendingar Verkbeiðnir Styrkbeiðnir English


Leita á vef
Ítarleg leit

Nýjustu fréttir
 
Heim : Fréttir : Fréttir af PhotoServer kynningunni fyrir stafrænar myndi
Fréttir af PhotoServer kynningunni fyrir stafrænar myndi
Kynningin í síðustu viku heppnaðist einkar vel og voru gestir mjög ánægðir með kynninguna og þá ekki síst þá möguleika sem kerfið býður upp á. Sérstaklega vakti athygli hvernig viðskiptavinir nota PhotoServer með mismunandi hætti og sveigjanleiki kerfisins þegar myndir eru settar inn, teknar út og hinir fjöldamörgu tengingarmöguleikar kerfisins.

Til hamingju Kristín V. Richardsdóttir hjá Landsvirkjun sem vann Canon ljósmyndaprentarann á PhotoServer kynningunni!

Dregið var úr innsettum myndum í FOCAL PhotoServer á slóðinni http://www.focal.is/photo og var Kristín Richardsdóttir hjá Landsvirkjun sú heppna. Það var sérlega ánægjulegt að afhenda henni verðlaunin því hún sagðist aldrei vinna neitt! Prófaðu endilega að setja inn mynd eða myndaröð á http://www.focal.is/photo

Eru kannski 5-10.000 myndir í felum í þínu fyrirtæki?
Yfir 90% þeirra sem taka myndir nota rafrænar myndavélar og speglast sú aukning inn í fyrirtæki og stofnanir. Stafrænar myndir koma í auknum mæli í viðbót við hefðbundin skjöl og skal meðhöndla þau sem skjöl samkvæmt lögum um Þjóðskjalasafn. Of algengt er að hver ljósmyndari geymi myndirnar hver með sínu lagi og jafnvel inn á sínu C-drifi sem enginn annar hefur aðgang að. Þá eru myndaraðir oft óritskoðaðar og myndir sendar á milli starfsmanna í tölvupósti. Mikið gagnamagn hleðst upp og fáir gera sér grein fyrir því diskaplássi sem þarf né hversu langan tíma það getur tekið að fletta í gegnum möppur til að finna þær myndir sem verið er að leita að. Með því að flokka myndir í PhotoServer finna starfsmenn strax þær myndir sem vantar, slegið er inn í leitarstreng og ýtt á "leita"...

Um FOCAL PhotoServer
Með FOCAL PhotoServer er auðvelt að setja inn myndir þar sem kerfið er vefhæft og eru því allar myndir og myndaraðir settar inn í gegnum Internet Explorer. Kerfið les upplýsingar úr myndavélinni og leyfir síðan innskráningu á lýsigögnum eins og hverjum og einum hentar. Hægt er að setja myndir inn á nánast hvaða formati sem er og taka myndirnar út á því formati sem hentar. Kerfið er mjög notendavænt og sveigjanlegt og gerir skjalastýringu myndefnis mögulega. Hægt er að setja margar myndir inn í einu. Tengingarmöguleikar: Inn á heimasíður, við verkefnakerfi, við GPS hnit á loftmyndum, ofl, ofl.
FOCAL PhotoServer hentar öllum fyrirtækjum og stofnunum sem þurfa að varðveita myndefni og hafa gott aðgengi og skipulag á sínu myndefni, en meðal notenda eru Landsvirkjun, Siglingastofnun, Skipulagsstofnun, Vegagerðin, VERKÍS, Faxaflóahafnir og Garðabær.

Ef þú vilt fá kynningu eða frekari upplýsingar vinsamlegast hafðu samband við okkur á focal@focal.is eða í síma 5400 900.

(skráð 24. feb. 2010)

Til baka



Prentvæn útgáfa

Senda í tölvupósti

Senda á Facebook