|
|
|
|
| |
Heim : Fréttir : Íslenskt hugbúnaðarfyrirtæki kynnir gæðastjórnunarhugbúnað fyrir Microsoft SharePoint
Íslenskt hugbúnaðarfyrirtæki kynnir gæðastjórnunarhugbúnað fyrir Microsoft SharePoint
Íslenska hugbúnaðarfyrirtækið FOCAL Software stóð fyrir ráðstefnu á Grand Hótel Reykjavík þann 10. nóvember um Microsoft SharePoint 2010 og íslenskan gæðastjórnunarhugbúnað. Gæðahandbókarkerfi, Ábendingakerfi og Úttektarkerfi fyrir Microsoft SharePoint 2010.
Fundurinn var vel sóttur af aðilum úr öllum atvinnugreinum enda mörg fyrirtæki áhugasöm um möguleika SharePoint og um gæðastjórnun almennt.
Á fundinum fór Guðjón Örn Þorsteinsson, sérfræðingur í SharePoint hjá ePa;högun, yfir helstu möguleika SharePoint Foundation, „ókeypis“ útgáfunnar frá Microsoft. Guðjón lagði ríka áherslu á að stefnumótun og settar reglur fyrir notkun í SharePoint ásamt þjálfun starfmanna væri lykillinn að farsælli innleiðingu og góðri nýtingu á möguleikum SharePoint.
Kristín Björnsdóttir, ráðgjafi hjá FOCAL, sýndi FOCALShare Gæðakerfin og lýsti virkni þeirra, en þau byggja öll á viðurkenndri aðferðafræði um verklag og bestu vinnubrögð eins og þeim er lýst í alþjóðlegum gæðastöðlum.
Þá sagði Elvar Vilhjálmsson, gæðastjóri Íslenska Gámafélagsins, frá markmiðum fyrirtækisins um að fá vottun samkvæmt gæðastaðlinum ISO 9001:2008 og umhverfisstaðlinum ISO 14001:2004 og hvernig FOCALShare Gæðakerfin væru að notuð í þeirri vinnu.
Hönnun FOCALShare kerfanna byggir á yfir 16 ára reynslu FOCAL í hugbúnaði til gæða- og skjalastjórnunar, en fyrirtækið hefur innleitt yfir 200 kerfi hjá fyrirtækjum og stofnunum í öllum atvinnugreinum og eru notendur yfir 40.000.
(skráð 16. nóv. 2011)
Til baka
Prentvæn útgáfa |
 Senda í tölvupósti |
 Senda á Facebook |
|
|