|
|
|
|
| |
Heim : Fréttir : "Ég er viss um að það var hér allt í gær?" Ráðstefna um skjalastjórnun með gæðastjórnun - gagnsæi og rekjanleiki.
"Ég er viss um að það var hér allt í gær?" Ráðstefna um skjalastjórnun með gæðastjórnun - gagnsæi og rekjanleiki.
Ráðstefnan verður haldin 24. mars frá kl. 09:00-12:00 á Grand Hótel Reykjavík. Ráðstefnunni er skipt í tvo hluta og fjallar sá fyrri um skjalastjórnun með gæðastjórnun, en seinni hlutinn er hefst kl. 11:00 um hugbúnað til skjala- og ferlastjórnunar og geta þátttakendur setið annan eða báða hluta ráðstefnunnar.
Ráðstefnan er í boði FOCAL og er þátttakendum að kostnaðarlausu.
Skráning hér
Dagskráin verður sem hér segir:
Fundarstjóri: Svanfríður Franklínsdóttir, Deildarstjóri Listasafn Íslands
Setning: Dr. Jóhanna Gunnlaugsdóttir, Prófessor í upplýsinga- og skjalastjórn, Háskóli Íslands
9:10 Skjalastjórnun á erfiðum tímum Ólafur Sigurðsson, framkvæmdastjóri hjá Stöfum Lífeyrissjóði
9:25Týndi hlekkurinn Jón B. Stefánsson, skólameistari, Tækniskólinn
9:45 Markmið og mælingar í skjalastjórnun: Hvað má betur fara? Óskar Þráinsson ráðgjafi hjá FOCAL
10:00 Kaffihlé
10:10 Aðferðafræði innleiðingar skjalastjórnunar með gæðastjórnun Erla Konný Óskarsdóttir, ráðgjafi hjá FOCAL
10:30 "Innleiðing skjalastjórnunar - reynslusaga." Þór Ásgeirsson, forstöðumaður Sjávarútvegsháskóla Sameinuðu Þjóðanna
10:50 Fyrri hluti ráðstefnu slitið. - Annar hluti ráðstefnu hefst kl. 11.00
Seinni hlutinn er opinn bæði þeim sem sækja fyrri hlutann sem og þeim sem vilja einvörðungu sækja seinni hlutann. Dagskráin verður sem hér segir:
1. Kynning á hugbúnaði til Ferlastjórnunar fyrir Microsoft og SharePoint 2. Kynning á Meridio Skjalakerfinu fyrir Microsoft og SharePoint -- Alþjóðlegir staðlar og viðmið (DOD; ISO; Moreq2...) -- Hvernig vinnur Meridio með Outlook og SharePoint 3. Kynning á FOCAL Málakerfi með Meridio
Kynninguna halda Hörður Olavson framkvæmdastjóri FOCAL og Kristín Björnsdóttir, markaðsstjóri.
(skráð 17. mar. 2009)
Til baka
Prentvæn útgáfa |
 Senda í tölvupósti |
 Senda á Facebook |
|
|