Heim
Fréttir
Starfsumsókn
Fyrirspurnir
Ábendingar
Verkbeiðnir
Styrkbeiðnir
Leita á vef
Ítarleg leit
RSS
Nýjustu fréttir
Skoða eldri fréttir...
Heim
:
Fréttir
: Úttektir heildarlausn
Úttektir heildarlausn
FOCAL ÚTTEKTAKERFI
er sértækt kerfi til að halda utan um innri og ytri úttektir og uppfyllir ýtrustu kröfur um framkvæmd úttekta. Gerð er úttektaráætlun, úttektarskýrsla sett upp, frávik skráð og sett í úrbótaferil og frávikum og skýrslunni lokað með rafrænum undirskriftum. Kerfið er fjöltyngt, vefhæft, gefur greinargóða yfirsýn og tryggir skilvirkan frágang úttekta og frávika.
FOCAL Úttektir 3.1 er komin út:
Helstu nýjungar:
– Vefviðmót á heildarferli úttekta og frávika
– Nýr ritill með fjölda ritvinnslumöguleika
– Nýtt og notendavænna útlit
– Sjónarhorn f. tilvísanir í kröfur
– Tungumálaviðmót, þrjú tungumál
NÁMSKEIÐ Í ÚTTEKTUM
Markmið námskeiðsins er að kynna þátttakendum aðferðafræði við framkvæmd innri úttekta, skýra frá kröfum mismunandi staðla um úttektir og þjálfa þátttakendur sem úttektaraðila. Verklega verður farið í úttekt.
Farið er yfir eftirfarandi þætti á námskeiðinu:
– Almennt um innri úttektir og tilgang þeirra
– Kröfur ISO staðla um úttektir
– Skipulag innri úttekta
– Verklagsreglur um innri úttektir
– Hlutverk úttektaraðila
– Framkvæmd innri úttekta
– Úttektarskýrsla og frávikaskráning
– Gátlisti úttektar
– Lokun frávika og úttektar
– Verkleg æfing
Næsta námskeið er 08.04.2010.
Skráðu þig hér
DÆMI: RÁÐGJÖF VIÐ
FRAMKVÆMD INNRI ÚTTEKTA
– Undirbúningur fyrir framkvæmd innri úttekta s.s. uppsetning áætlunar og aðlögun skýrsluforma.
– Úttektaráætlun gerð og skilgreind hlutverk úttektaraðila. Þjálfun starfsmanna sem að úttektum koma.
– Gátlistar fyrir úttektir á verklagsreglum, tilheyrandi vinnulýsingum og verkefnum settir upp.
– Framkvæmd úttekta eftir áætlun.
– Frávik yfirfarin með stjórnendum, úrbótaaðgerðir skilgreindar.
– Eftirfylgni með framkvæmd úrbóta og eftirúttekt. Frágangur úttektarskýrslna og gagna
í skrá fyrir innri úttektir.
HAFÐU SAMBAND VIÐ OKKUR Í s. 5 400 900 eða á
focal@focal.is
(skráð 28. jan. 2010)
Til baka
Prentvæn útgáfa
Senda í tölvupósti
Senda á Facebook