Heim Fréttir Starfsumsókn Fyrirspurnir Ábendingar Verkbeiðnir Styrkbeiðnir English


Leita á vef
Ítarleg leit

Nýjustu fréttir
 
Heim : Hugbúnaður

Almennt um FOCAL Hópvinnulausnir

FOCAL Software & Consulting (Hópvinnukerfi ehf.) hefur starfað í yfir tíu ár að gerð og innleiðingu hópvinnulausna á sviði gæðamála, starfsmannamála, skjalamála og markaðsmála. FOCAL kerfi á þessum sviðum eru nú orðin 25 talsins. FOCAL kerfin bjóða upp á heildarlausn í gæðastjórnun, skjalastjórnun, verkefnastjórnun, markaðsstjórnun og mannauðsstjórnun.

Fyrir opinberar stofnanir jafnt sem einkafyrirtæki
Hópvinnukerfi ehf. starfa fyrir stofnanir og einkafyrirtæki í öllum atvinnugreinum. Frá upphafi hefur mikið verið mikið lagt upp úr því að FOCAL kerfin geti þjónað ólíkum aðilum með ólíkar þarfir.

Mörg stærri FOCAL kerfanna hafa verið það lengi á markaðnum að til undantekninga heyrir ef aðlaga þarf þau fyrir viðskiptavini.

Henta fyrir alla gæðastaðla
Eitt af höfuðmarkmiðum Hópvinnukerfa ehf. er að þróa hugbúnaðarlausnir er uppfylla strangar kröfur fagmanna á hverju stjórnunarsviði, eða staðla eins og ISO 9000, HACCP, TQM, EN 45000 o.fl. Viðskiptavinir fyrirtækisins vinna eftir flestum þessara staðla.


Gæðastjórnun
Þeir sem unnið hafa við gæðastjórnun þekkja hversu tímafrekt getur verið að halda utan um uppfærslu gæðahandbóka, úrvinnslu kvartana og verkefnastjórnun svo eitthvað sé nefnt. Sjá nánari
Skjalastjórnun
Í nútímaviðskiptum er nauðsynlegt að rétt sé haldið á spöðunum þegar kemur að því að skipuleggja skjalastjórn fyrirtækja. Með FOCAL skjalakerfi gefst stjórnendum og starfsmönnum fyrirtækja mögulegt að fylgjast með þeim málum sem í gangi hverju sinni í fyrirtækinu. Þetta eru ómetanlegar upplýsingar sem starfsmenn verða að hafa aðgang að. Sjá nánari


Mannauðsstjórnun
Flestir stjórnendur þekkja það hversu yfirgripsmikið það getur verið að halda utan um starfsmannamál fyrirtækisins. Kerfin í FOCAL Mannauðsstjórnun ná til allra þeirra þátta sem nauðsynlegt er að hafa á reiðum höndum varðandi starfsmannamál innan stofnana og fyrirtækja. Sjá nánari


Markaðsstjórnun
FOCAL hefur á boðstólum ýmis markaðs- og sölustjórnunarkerfi sem geta auðveldað vinnu og upplýsingaöflun fyrirtækisins. Sjá nánari




Prentvæn útgáfa

Senda í tölvupósti