Heim Fréttir Starfsumsókn Fyrirspurnir Ábendingar Verkbeiðnir Styrkbeiðnir English


Leita á vef
Ítarleg leit

Nýjustu fréttir
 
Heim : Hugbúnaður : Annar hugbúnaður


    Meridio
    Meridio er skjalastjórnunarkerfi sem byggir á eiginleikum Microsoft. Kerfið hentar sérlega vel fyrirtækjum sem vilja halda sig við Microsoft umhverfið og býður m.a. upp á vinnu í gegnum Outlook, SharePoint og Microsoft Explorer. Kerfið er auðvelt og öruggt í notkun og uppfyllir allar þær kröfur sem gerðar eru til skjalastjórnunarkerfa samkvæmt ISO 15489 og DoD 5015.2.
    Smelltu hér til að fræðast meira um um Meridio fyrir Microsoft

    K2 Vinnuferlakerfið
    K2.net nýtir sér flæðirit m.a. með Visio teikningum til að virkja vinnuferla. Notendur K2.net eru í öllum geirum og nýta sér kerfið til að virkja ferla á mörgum sviðum, en má þar nefna fyrir þjónustuferla, umsóknarferla, gæðaferla, mannauðsferla, framleiðsluferla, innkaupaferla, tilboðs- og útboðsferla, fjármálaferla, vöruþróunarferla, styrkbeiðnaferla svo dæmi séu nefnd.
    Smelltu hér til að fræðast meira um K2 - vinnuferla
    Lotus Quickr
    Quickr er verkefnastjórnunarkerfi sem byggir á eiginleikum Domino miðlarans. Kerfið uppfyllir allar þær kröfur sem gerðar eru til skjalastjórnunarkerfa m.a. öfluga útgáfustjórnun og fullkomna leitarmöguleika. Kerfið er hannað fyrir hópvinnu og geta notendur stofnað miðlæg vinnusvæði á vefnum fyrir einstök verkefni og þannig komist í og miðlað gögnum á auðveldan hátt.
    Smelltu hér til að fræðast meira um Quickr

    Lotus Instant Messaging and Web Conferencing (Sametime)
    Sametime býður upp á samvinnu í rauntíma óháð landfræðilegum takmörkunum. Kerfið býður m.a. upp á að þeir samstarfsfélagar, samstarfsaðilar í viðskiptum eða viðskiptavinir sem eru nettengdir geta átt samskipti á margskonar hátt allt frá skilaboðum manna á milli upp í svokallaða 'sýndarfundi'. Kerfið býður einnig upp á að menn geta unnið með hugbúnað sem er á vél þess sem hann á í samskiptum við (live application sharing). Hvort sem takmarkið er að kynna nýtt forrit fyrir sölumönnum úti á mörkinni, að auka skilvirkni og framleiðni eigin starfsfólks, eða rauntíma aðstoð við viðskiptavini á vefnum er Sametime sú lausn sem rétt er að skoða nánar.
    Smelltu hér til að fræðast meira um Sametime








    Fyrir frekari upplýsingar sendið fyrirspurn til: focal@focal.is



Prentvæn útgáfa

Senda í tölvupósti